Björgunarsveitin Skagfirðingasveit hefur gert upp árið á heimasíðu sinni enda árið 2013 annasamt. Á gamlársdag fyrir ári síðan var vont veður og menn í útköllum fram eftir degi og þess vegna var flugeldasýningu og brennu fresta...
Íþróttamaður Ungmennasambands Austur-Húnvetninga var valinn við hátíðlega athöfn í gær 29. desember. Sjö tilnefningar bárust frá aðildarfélögum USAH og varð það Snjólaug María Jónsdóttir skotíþróttakona úr Skotfélagin...
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, frjálsíþróttamaður úr Tindastóli, var valinn Íþróttamaður Skagafjarðar 2013 við hátíðlega athöfn sl. föstudagskvöld. Jóhann, sem er 18 ára gamall, hefur þegar skipað sér í fremstu röð í...
Kjöri íþróttamanns USVH (Ungmennasambands Vestur-Húnavatnssýslu) var lýst í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga kl. 15,00 þann 28. des. 2013. Íþróttamaður USVH árið 2013 var kjörinn Ísólfur Líndal Þórisson hestaíþróttam...
Frystitogarinn Örvar SK-2 verður seldur úr landi. Viðunandi kauptilboð barst í frystitogarann Örvar SK-2 , sem gerður er út frá Sauðárkróki og frágangur samninga stendur nú yfir, en stefnt að því að skipið verði afhent ný...
Jólamót Molduxa í körfubolta fór fram annan í jólum þar sem átján lið tóku þátt. Fór svo að liðið StífBónaðir stóðu uppi sem sigurvegarar opnum flokki, Stólastelpur í kvennariðlinum og í flokknum 35+ voru það Molduxarn...
Dag einn þegar Sölmundur var kominn með leið á þessum helvítis fuglum ákvað hann að taka til sinna ráða. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá hvernig þau ráð dugðu.
http://www.youtube.com/watch?v=Yjdx_PfKM_c
Hin árlega jólaspilavist Neista á Hofsósi verður haldin í kvöld 27. desember 2013 klukkan 21:00 á Hlíðarhúsinu. Hefðbundin dagskrá, kaffihlaðborð og glæsilegir vinningar að vanda. Á morgun verður svo hið árlega jólaball haldi...
Kennsla í skrifstofuskólanum hefst á vegum Farskólans um miðjan janúar. Verður boðið upp á bæði dagnám og kvöldnám. Markmið námsins er að auka hæfni námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og stuðla á jákvæ...
Við stöndum frammi fyrir mikilvægri þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst. Niðurstaðan gæti varðað miklu um framtíð mína og minna og byggðarlagsins míns. Ég er bóndi og við fjölskyldan rekum býli á Brúnastöðum í Fljótum. Þar stundum við ýmiskonar starfsemi, erum með stórt sauðfjárbú á íslenskan mælikvarða, framleiðum nautakjöt og mjólkum geitur til að gera geitaosta. Við rekum einnig ferðaþjónustu og leggjum áherslu á að öll þessi verkefni styðji hvert annað. Við bjóðum gestum og gangandi að koma og kynna sér það sem við erum að gera og kaupa afurðirnar okkar.
Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í mánuðinum. Þvert á móti hefur hún haldið áfram í sumar að kynda undir verðbólgunni. Meðal annars með hækkun komugjalda á heilsugæzlustöðvar um 100%. Vanhæfni ein og sér getur ekki útskýrt framgöngu hennar.
Búið er að framlengja umsóknarfrest vegna Skúnaskralls – barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra, en tekið verður við umsóknum til og með 24. ágúst.
Eins og vonandi öllum er kunnugt mun barnamenningarhátíðin Skúnaskrall fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 undir yfirskriftinni Öll saman. Hátíðin er haldin á vegum SSNV í góðu samstarfi við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og er markmið hennar að börn og ungmenni á svæðinu fái að njóta fjölbreyttrar og vandaðrar menningardagskrár í sínu nærumhverfi.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Í Austurgötunni á Hofsósi býr ung snót, Ingunn Marín Bergland Ingvarsdóttir, fædd 2008 og því 15 ára á árinu, en hún tók á dögunum þátt í Norðurorgi sem er söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Norðurlandi. Ingunn hefur áhuga á leiklist, söng og tísku. „Ég er að læra á rafmagnsgítar hjá Einari Þorvaldssyni en tel mig vera þúsundþjalasmið í þjálfun og spila líka á píanó, blokkflautu og ukulele. Þegar ég var mjög ung prófaði ég að læra á fiðlu,“ segir hún.