Fréttir

Bilun hjá Vodafone komin í lag

Bilun varð á GSM-sambandi, net- og sjónvarpsþjónustu Vodafone á Norðurlandi í gær. Bilunin átti sér stað á Akureyri og gerði það að verkum að truflun varð á sambandi víða um Norðurland. „Tæknimenn unnu fram á rauða n
Meira

Aðeins færri safngestir 2011 en árið áður

Byggðasafn Skagfirðinga hefur gert upp árið á heimasíðu sinni en aðeins færri gestir létu sjá sig árið 2011 en árið áður. Á sýningum safnsins komu alls 31.300 manns, þar af heimsóttu 28.461 Glaumbæ og 2.839 í Minjahúsið
Meira

Funi kærir ekki ákvörðun LH

Stjórn Hestamannafélagsins Funa í Eyjafjarðarsveit hyggst ekki kæra til ÍSÍ þá ákvörðun stjórnar Landssambands hestamanna að setja landsmótin 2014 og 2016 niður á Hellu og Vindheimamelum í Skagafirði en Funi sótti um bæði mó...
Meira

Áramótabrenna á Sauðárkróki - Feykir-TV

Samkvæmt hefð var kveikt í áramótabrennunni á Sauðárkróki á gamlárskvöld. Múgur og margmenni létu sjá sig, enda veður með besta móti þetta árið. http://www.youtube.com/watch?v=MRCtkL_pPS4&feature=youtu.be
Meira

Algjörlega frábær þessi Feykir

Frú Frábær hefur séð hið nýja útlit á Feyki.is og er alveg himinlifandi með það. Hefur hún aldrei áður séð jafn skemmtilega síðu á Netinu þó hún hafi víða ratað. Óskar hún öllum Norðlendingum gleðilegs nýs árs og t...
Meira

Jólalög á léttu nótunum

Ónefndur sönghópur á Norðurlandi var talsvert gagnrýndur í desember fyrir tónleikahald sitt eða öllu heldur lagaval. Kom hópurinn fram í stórmörkuðum og söng fyrir sjúklinga og eldri borgara og samanstóð dagskráin einungis af l...
Meira

Feykir í andlitslyftingu

Nú hefur ásýnd Feykis.is tekið á sig nýja mynd og breyst til mikilla muna. Er það von okkar að hin nýja síða verði lesendum miðilsins að skapi og þeir hafi ánægju af því að lesa hann. Helstu breytingar má finna í því að ...
Meira

Skref aftur á bak hjá Sjónvarpinu

Ríkissjónvarpið sýndi áður Circus Billy Smart um áramót. Nú er það bara Circus Jóhönnu Sig. Herra Hundfúlum finnst þetta skref aftur á bak.
Meira

Tiltölulega friðsæl áramót

Að sögn Lögreglunnar á Sauðárkróki voru áramótin tiltölulega friðsæl í þeirra umdæmi þó með nokkrum undantekningum sem fylgir skemmtanahaldi s.s. eins og ölvun, skemmdaverk og minni háttar líkamsmeiðingar. Einnig var eitthva...
Meira

Sveit Guðna Kristjánssonar sigurvegari á Þorsteinsmóti í bridge

Sveit Guðna Kristjánssonar sigraði árlegt Þorsteinsmót í bridge sem fór fram í Félagsheimilinu á Blönduósi þann 30. desember sl. Tíu sveitir tóku þátt í mótinu sem hófst kl. 11 um morguninn og lauk rúmum átta klukkustundum...
Meira