Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Adomas Drungilas um að leika með Tindastól næsta tímabil. Drungilas þekkja allir en hann varð Íslandsmeistari með Þór Þorlákshöfn vorið 2021.
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
09.06.2022
kl. 13.35
Um komandi helgi munu um 30 manns úr Húnaþingi vestra halda áleiðis til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Þjóðleikhúsið en síðustu daga hefur hópurinn verið við æfingar í Félagsheimilinu Hvammstanga á barnaleikritinu Pétri Pan sem sýna á í Kassanum í Þjóðleikhúsinu næstu helgi.
Þriðjudaginn 14. Júní verður haldinn golfdagurinn á norðurlandi á Hlíðarendavelli. Þetta er frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni og dagskrá verður fyrir alla fjölskylduna.
Aðalfundur kvenfélagsins Heklu var haldinn í Skagabúð 7. júní s.l. Á fundinum fóru fram formannaskipti en þá lét Árný Margrét Hjaltadóttir á Steinnýjarstöðum af störfum sem formaður en því embætti hafði hún gegnt síðustu 37 ár.
Fyrsti fundur sveitarstjórnar Húnabyggðar var haldinn í Dalsmynni í gær. Á honum var skipað í nefndir og ráð og helstu embætti. Guðmundur Haukur Jakobsson var kjörinn forseti sveitarstjórnar og Grímur Rúnar Lárusson varaforseti.
Fram kemur á heimasíðu Textímiðstöðvarinnar að Iceland Field School frá Concordia háskólanum í Montreal sé lentur á Blönduósi og munu nemendurnir dvelja í Textílmiðstöðinni allan júnimánuð.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu tröllríður flestu þessar vikurnar. Ég hef náð að horfa á nokkra leiki þrátt fyrir nánast algjört áhugaleysi áður en bolta var sparkað. Það kom kannski einna helst til af gríðarlega neikvæðri umræðu um mótið áður en það hófst og mátti skilja sem svo að það væri bara enginn að fara að mæta á leikina sök-um dýrtíðar, græðgi og vandamála við að komast inn í Bandaríkin. Yfir allri umræðunni grúfði svo Trump gamli, eins og ein af sálsugunum í Harry Potter-bókunum.
Fyrir ofan bæinn okkar liggur Skógarhlíð, Litli-Skógur og Nafirnar, eitt stórt svæði sem tengist og sem gerir samfélagið okkar á Sauðárkróki sérstakt. Þar má finna fallegan gróður, fjölbreytta stíga, mikið fuglalíf og einstaka náttúru sem dregur að sér fólk allt árið um kring. Fyrir marga eru þetta staðir til að hlaða batteríin, njóta hreyfingar og finna frið frá annríki dagsins.
Formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartozsek, hefur undanfarið haldið því fram á samfélagsmiðlum að aðild Íslands að ESB gæti leitt til verulegrar lækkunar matvælaverðs. Hefur hann gengið svo langt að halda því fram að verð á matvörum og skyndibitum, svo sem tilteknum vefjum á veitingastöðum, gæti lækkað um allt að 25%.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Kokkur er nefndur Jón Daníel Jónsson og galdrar hann fram mat á Drangey Restaurant og undir nafni Grettistaks, ýmist á Króknum, Austantjalds eða bara þar sem pottarnir kalla nafn hans. Jón Dan er fæddur 1968 og er frá Stóra Búrfelli í Svínavatnshreppi. „Mamma heitir Anna Gísladóttir og býr á Króknum,“ segir kappinn eldhress.