Aðgangskort að sorphirðustöðvum?

Inga Katrín D. Magnúsdóttir, varamaður V lista í Sveitarfélaginu Skagafirði, lagði fram athyglisverða tillögu á fundi umhverfis- og samgöngunefndar í gær um aðgengi íbúa að sorphirðustöðvum í héraðinu. Sér hún fyrir sér að íbúar sem þess óska fái aðgangskort sem veiti þeim aðgengi að helstu gámum sorphirðustöðvanna, utan auglýstra opnunartíma.
Í greinargerð með tillögunni segir að sorpgámar Sveitarfélagsins hafi verið fjarlægðir og ætlast sé til að fólk í sveitum fari sjálft með heimilissorp á sorphirðustöðvar. Íbúar hafi gagnrýnt skerta þjónustu, sérstaklega hvað varðar takmarkaða opnunartíma sorphirðustöðvanna:
„Með aðgangskortum væri íbúum gefinn kostur á losa sig við sorp þegar þeim hentar, óháð opnunartíma sorphirðustöðva. Aðgangskort væri gefið út á kennitölu og við afhendingu fengi handhafi fræðslu um flokkun sorps frá starfsmanni sorphirðustöðva, upplýsingar um æskilega umgengni um svæðið sem og með hvaða hætti fylgst er með notkun kortsins. Ítrekuð frávik frá reglum gætu þýtt afturköllun á aðgangi að svæðinu. Mikilvægt er að unnið sé með starfsfólki sorphirðustöðvanna að útfærslu tillögunnar.“
Nefndin fól sviðsstjóra að taka þessa tillögu til skoðunar í tengslum við fyrirhugað útboð í sorpmálum.
Tengdar fréttir:
Allt í rusli í Skagafirði?
Þremur gámastöðvum lokað í Skagafirði