Aldraðir og þeir sem tilheyra viðkvæmum hópum geta fengið heimsendan mat

Vegna ástandsins sem ríkir nú í Skagafirði í kjölfar Covid smita í samfélaginu hefur sveitarfélagið vakið athygli á því á heimasíðu sinni að eldra fólk og aðrir sem tilheyra viðkvæmum hópum, sem hingað til hafa ekki fengið félagslega heimaþjónustu og/eða heimsendan mat, geti haft samband við afgreiðslu Ráðhússins og óskað eftir símtali.

Félagsráðgjafi mun þá hafa samband og aðstoða eftir þörfum. Símanúmer ráðhússins er 455-6000.

Aðstandendur þeirra sem ekki eru nettengdir eru hvattir til að koma þessum upplýsingum á framfæri.

Þá eru allir eru minntir á að fara varlega og muna eftir sóttvörnum.

Fleiri fréttir