Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á Norðurlandi vestra
Í hádeginu fimmtudaginn, 19. október verður fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á Norðurlandi vestra. Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV fer yfir áskoranir og tækifæri á Norðurlandi vestra.
Elmar Erlendsson framkvæmdastjóri HMS yfir stöðu íbúðauppbyggingar síðan verður fjallað um stafræn byggingaleyfi svo eitthvað sé nefnt. Boðið verður uppá súpu og allir boðnir velkomnir.