Félagsmót Léttfeta
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
01.07.2014
kl. 08.19
Félagsmót Léttfeta verður haldið þann 12. júlí nk. á félagssvæðinu. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
A-flokki gæðinga
B-flokki gæðinga
Ungmennaflokki
Unglingaflokki
Barnaflokki
Skráningargjald á hest er 1500 kr
Skráning er á netfangið ingunnsandra@gmail.com
Skráningarfrestur er til kl. 23 þann 10. júlí nk.
IFrétttatilkynning
Fleiri fréttir
-
Hrekkjavakan er á morgun!
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 30.10.2026 kl. 10.14 oli@feykir.isÞað eru margir – bæði ungir og aldnir – farnir að láta sig hlakka til Hrekkjavökunnar sem er einmitt núna á laugardaginn. Hrekkjavakan er árlegur viðburður sem ávallt ber upp þann 31. október. Vakan á rætur að rekja til fornrar keltneskar hátíðar sem kallaðist Samhain en nú seinni árin tengjum við þennan dag kannski frekar við bandarískar hrollvekjur og eitt og annað tengt þeim. Ekki er langt síðan að Íslendingar vöktu upp Hrekkjavökuna og Feykir afréð að spyrja Hrafnhildi Viðars út í málið en hún er ein af þeim sem störtuðu Grikk og gott á Króknum. Við hefjum leik á að spyrja hvað standi til...Meira -
Ók bílnum á allt að 193 km hraða þegar slysið varð
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 30.10.2026 kl. 09.42 oli@feykir.isHéraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt ungan mann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir glæfraakstur á Siglufjarðarvegi í Skagafirði. Í frétt á mbl.is segir að maðurinn hafi ekið á allt að 193 kílómetra hraða á klukkustund áður en hann missti stjórn á bifreiðinni og hún valt út af veginum. Farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða í slysinu.Meira -
Donni tekur á ný við kvennaliði Tindastóls!
Í gær kom tilkynning frá knattspyrnudeild Tindastóls þar sem tilkynnt var að Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, hefur verið ráðinn aðalþjálfari hjá meistarflokki kvenna og hefur undirritað þriggja ára samning við félagið. Donni þekkir að sjálfsögðu fótboltann á Króknum út og inn en hann hefur áður starfað hjá Tindastóli, þar sem hann var aðalþjálfari meistaraflokks kvenna árin 2022–2025 auk þess að hafa þjálfað karlaliðið, ýmist sem aðal- eða aðstoðarþjálfari.Meira -
Guðni Bent með U15 liði Íslands í Austurríki
U15 landslið karla gerði í gær 3-3 jafntefli við Austurríki í fyrsta leik liðsins á UEFA Development móti sem leikið er í Austurríki þessa dagana. Einn ungur og efnilegur kappi úr unglingastarfinu hjá Tindastóli er með í ferðinni, Guðni Bent Helgason, og hann var í byrjunarliði Íslands.Meira -
Hjördís Halla og Hreindís Katla verðlaunaðar
Uppskeruhátíð Æskulýðsdeildar Skagfirðings var haldin 25. október í Tjarnarbæ þar sem veitt voru verðlaun fyrir tímabilið. Það voru þær Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Hreindís Katla Sölvadóttir sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.Meira
