Fjöldatakmörk á samkomum hækka og fleiri tilslakanir

Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi í dag, mánudaginn 25. maí. Nýju reglurnar veita heimild til að allt að 200 manns geti komið saman í stað 50 nú og heimilt er að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði. Einnig verður öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, heimilt að hafa opið til kl. 23.00. Hvatt er til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er. 

Framkvæmd tveggja metra reglurnar verður breytt nokkuð frá því sem verið hefur. Horft er til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.

Í auglýsingunni kemur fram að á líkamsræktarstöðvum verður takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi, rétt eins og gildir á sund- og baðstöðum. Áfram verða gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif almenningsrýma og hingað til.

Frá upphafi COVID-19 faraldursins hér á landi hafa greinst smit hjá rúmlega 1.800 einstaklingum. Undanfarið hefur nýsmitum fækkað verulega og hafa aðeins fimm einstaklingar greinst það sem af er maímánuði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að þær tilslakanir sem gerðar voru á samkomutakmörkunum 4. maí síðastliðinn virðist ekki hafa leitt til fjölgunar sjúkdómstilfella.

Ný auglýsing um takmörkun á samkomubanni gildir til 21. júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir