Fjölskyldudagur á Hlíðarenda

Fjölskyldudagur verður á golfvellinum Hlíðarenda á Sauðárkróki laugardaginn 17.maí nk. kl.13-15. Þar verður kynning á starfinu sem golfklúbburinn býður upp á í sumar, farið yfir æfingadagskrá barna og unglinga og golfskólann.

Samkvæmt heimasíðu golfklúbbsins verður Hlynur Þór Haraldsson golfkennari á æfingasvæðinu og  sýnir réttu handtökin.  Svo verður hægt fylgjast með nokkrum reynslumiklum kylfingum spila nokkrar golfholur.

Golfmarkaður verður í skálanum og þar verður líka heitt á könnunni og léttar veitingar.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu golfklúbbsins.

Fleiri fréttir