,,Fyrirmynd innan vallar sem utan"
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
23.05.2014
kl. 09.58
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur samið við Bríeti Lilju Sigurðardóttur um að spila með liði Tindastóls á næsta tímabili. Á vef félagsins lýsir stjórn Körfuknattleiksdeildarinnar yfir mikilli ánægju að Bríet verði áfram innan herbúða liðsins, en hún var einn af máttastólpunum í 1. deildar liði Stólanna í vetur og var valin í U16 ára landslið Íslands.
Bríet Lilja er 16 ára gömul og er að sögn stjórnarinnar mikil fyrirmynd innan vallar sem utan. Hún hefur sýnt það að allir vegir eru færir ef maður leggur sig allan fram í að verða betri með hverri æfingu. Frábær árangur hjá Bríeti Lilju!