Gleðilegt nýtt ár!

Frá áramótabrennu á Blönduósi fyrr í kvöld. MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON
Frá áramótabrennu á Blönduósi fyrr í kvöld. MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON

Feykir óskar lesendum sínum, sem og landsmönnum öllum, gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir árið sem var að líða undir lok.

Megi nýja árið reynast okkur öllum heldur betra en það gamla og færa okkur lækkandi vexti og hjaðnandi verðbólgu, frið á jörðu og eitthvað pínu meira sem gæti glatt okkar hjörtu.

Með kveðjunni birtum við mynd sem Róbert Daníel Jónsson tók við glæsilega áramótabrennu á Blönduósi í kvöld. Þar sá Björgunarsveitin Blanda um flugeldasýningu. Sjá má fleiri myndir á Facebook-síðu Róberts.

Fleiri fréttir