Helgi Svanur Einarsson ráðinn sem verslunarstjóri Eyrarinnar á Króknum
Í lok nóvember auglýsti Kaupfélag Skagfirðinga eftir verslunarstjóra fyrir Byggingavöruverslunina Eyrin og hefur Helgi Svanur Einarsson verið ráðinn í starfið og mun hefja störf 2. janúar.
Helgi Svanur er menntaður sem húsasmíðameistari og skrúðgarðyrkjumeistari og er eigandi Garðprýði sem sérhæfir sig í almennri smíðavinnu og viðhaldi húsnæða. Garðprýði býður einnig upp á alls kyns ráðgjöf ásamt því að sjá um hellulagnir, garðyrkjustörf og vélavinnu.
Feykir óskar Helga til hamingju með nýja starfið