Hellings golf í sumar | Frá Golfklúbbi Skagafjarðar
Golfsumarið er heldur betur komið á fullt. Fyrir utan innanfélagsmótin hjá okkur í boði HardWok og Esju Gæðafæðis þá eru opnu mótin farin að rúlla af stað líka og eru nú tvö opin mót búin og Meistaramót næst á dagskrá sem er hápunkturinn í mótahaldi hjá GSS. Meistaramóts vikan er 29. júní til 4. júlí og má þá búast við fjölmenni á vellinum og skemmtilegri keppni og alveg þess virði að gera sér ferð á Hlíðarendavöll og fylgjast með lífinu þar.
Opna KS mótið í Texas Scramble fór fram 13. júní í ljómandi góðu veðri og vor alls 22 lið sem tóku þátt, eða 44 keppendur. Sigurvegarar mótsins voru Sigríður Elín Þórðardóttir og Andri Þór Árnason á -12. Kaupfélag Skagfirðinga veitti vegleg verðlaun fyrir fyrstu 5 sætin og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Opna Hlíðarkaups mótið fór svo fram 20. júní, í kannski ekki eins góðu veðri. Norðanáttin var ríkjandi og það var frekar svalt og blautt að margra mati. En allir 24 keppendur skiluðu sér 18 holurnar og þáðu kaffiveitingar á eftir til að ylja sér. Kept var í einu opnum flokk í punktakeppni og það var Árný Lilja sem sigraði með 35 punkta. Líkt og í KS mótinu voru veitt vegleg verðlaun fyrir 5 efstu sætin og svo einnig nándarverðlaun á par 3 brautunum. Við þökkum Hlíðarkaup og Ásgeiri kærlega fyrir stuðninginn og vonum að þótt að þetta hafi verið síðasta mótið undir stjórn Ásgeirs að við sjáum áfram Hlíðarkaups mót á vellinum hjá okkur á komandi árum.
Það er svo nóg framundan hjá okkur það sem eftir lifir af sumri og hlökkum við til að sjá sem flesta á vellinum.
Golfkveðja Mótanefnd GSS

Fleiri fréttir
-
Sterkari saman | Gestaleiðari 39. tölublaðs Feykis
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 16.10.2026 kl. 19.33 oli@feykir.isFimmtudaginn 1. október komu sveitarstjórnarfulltrúar af öllu Norðurlandi vestra saman á Hótel Laugarbakka á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Samtökin eiga sér langa sögu og þingin eru orðin fastur liður í starfi sveitarfélaganna. Þar setjast sveitar-félög, ólík að stærð og aðstæðum, við sama borð og leita leiða til að gera landshlutann enn betri til búsetu og starfa.Meira -
Blái hnötturinn mun svífa í Bifröst
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason, í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar, þann 16. október næstkomandi. Leikgerðin er eftir Berg Þór Ingólfsson. Hátt í 60 manns koma að sýningunni í haust og æfingar hafa staðið yfir af fullum krafti frá því í lok ágúst.Meira -
Lón & Rakel flytja jólalög í Sauðárkrókskirkju
Það styttist óðum í að jólasöngvarar hefji upp sínar raustir enda jólin að nálgast seilingarfjarlægð. Í Skagafirði eru nú í það minnsta þrennir jóla-popp-tónleikar planaðir en Feykir hefur áður sagt frá Jólasveiflu í Miðgarði í lok nóvember þar sem jólalögin hans Geira verða í öndvegi og Jólin Heima sem verða í Miðgarði 12. desember. Nú hafa bæst við jólatónleikar í Sauðárkrókskirkju 3. desember þar sem Lón & Rakel verða á mjúku nótunum.Meira -
Sameining lögregluembætta veldur byggðarráði áhyggjum
Í frétt á Húnahorninu segir að byggðarráð Húnabyggðar hafi áhyggjur af áformum um sameiningu lögregluembætta og að sú miðstýring sem þar er boðuð geti haft neikvæð áhrif á öryggi íbúa. Sérstaklega er bent á hættu á fækkun starfa, lengri útkallstíma og minni áherslu á löggæslu í dreifbýli þegar fram líða stundir. Ráðið telur slíkt óásættanlegt.Meira -
Öruggur sigur á Ármanni í Síkinu
Það var leikið í Síkinu í gærkvöldi en þá kom lið Ármanns í heimsókn. Það fór svo að lið Tindastóls var töluvert sterkari aðilinn og vann alla leikhlutana en það má þó segja að Stólarnir hafi svo gott sem gert út um leikinn í öðrum leikhluta en í hálfleik var staðan 54-37. Mest varð forysta Stólanna 30 stig í síðari hálfleik en gestirnir náðu að laga stöðuna örlítið á lokakaflanum. Lokatölur 109-86.Meira
