Kammersveitin Elja í Miðgarði 30. júlí

Kammersveitin Elja kemur fram í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði fimmtudaginn 30. júlí kl. 20. Miðaverð er 2500 kr., 2000 kr. fyrir námsmenn, öryrkja og eldri borgara, en frítt er fyrir 15 ára yngri. Hægt verður að kaupa miða við hurð. Þetta verða fyrstu tónleikar sveitarinnar í tónleikaferð hennar um landið, nánari upplýsingar um miðasölu og tónleikaferðina í heild má nálgast hér.

Kammersveitin Elja er skipuð ungu, íslensku tónlistarfólki sem hafa einbeitt sér að ferli sem einleikarar, hljómsveitaspilarar og við hljómsveitarstjórn. Elja hefur undanfarin ár skipað sér sess sem ein af fremstu kammersveitum landsins og hefur vakið athygli fyrir líflegan og ferskan flutning. Sveitin hefur komið reglulega fram síðan 2017 og hefur haldið tónleika í hinum ýmsu húsakynnum, svo sem Gömlu kartöflugeymslunum, Hörpu, Iðnó, Gamla bíó og Tjarnarbíó. Um tónsprotann heldur einn af stofnendum Elju, Bjarni Frímann Bjarnason.

Margir meðlima Elju stunduðu saman nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands áður en þeir héldu í frekari háskólanám. Undanfarin ár hafa hljóðfæraleikarnir lagt metnað sinn í að samstilla sveitina sem einingu en markmið hljómsveitarinnar er að bjóða upp á kraftmikinn og lifandi tónlistarflutning með nánd við áhorfendur og mun hún takast á við allar þær stefnur og form sem hljóðfæraleikararnir leitast eftir að túlka. Kammersveitin hefur hlotið mikið lof fyrir flutning sinn og var tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna 2019 sem flytjandi ársins (hópar) í flokknum Sígild- og samtímatónlist.

Sumartónleikaferð um landið

Kammersveitin Elja heldur í fyrsta sinn í tónleikaferð um landið í sumar þar sem hún flytur fjölbreytta efnisskrá með sígildri og samtímatónlist þar sem meðal annars verður frumfluttur nýr harmonikkukonsert eftir Finn Karlsson. Einnig eru á efnisskránni verk eftir Caroline Shaw, Igor Stravinsky og Felix Mendelsohn. Keyrt verður hringinn um landið og tónleikar haldnir í öllum landsfjórðungum. Félagar sveitarinnar í ferðinni verða 32 talsins og stjórnandi verður Bjarni Frímann Bjarnason. 

Fyrstu tónleikar ferðarinnar verða þann 30. júlí í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði. Þaðan liggur leiðin á Berjadaga í Ólafsfirði en sveitin mun spila stórt hlutverk á tónlistarhátíðinni með tvennum tónleikum. Eftir það verða haldnir tónleikar í Félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði þann 2. ágúst, í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri 4. ágúst og svo loks verða síðustu tónleikar ferðarinnar haldnir í Háteigskirkju í Reykjavík þann 7. ágúst.

Heimasíða Kammersveitarinnar,  Facebookviðburður tónleikanna,  Kammersveitin Elja á instagram

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir