Kindum komið til byggða úr Hrolleifsdal
„Lengi von á einni! segir í skilaboðum Jónínu Bragadóttur til Feykis en það var gott betur en það því tvær kindur fundust í Hrolleifsdal sl. laugardag 4. febrúar. Eins og myndin sýnir nutu leitarmenn hjálpar hunda frá Arnarstöðum sið að handsama féð og voru þeir fljótir að króa þær af.
Kindurnar, sem báðar reyndust vera frá Mannskaðahóli, voru feitar og pattaralegar enda ekki mikill snjór og dalurinn grösugur.