Maður í mislitum sokkum í Sævangi

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir á sunnudaginn gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman í leikstjórn Skúla Gautasonar. Í tilkynningu leikfélagsins segir að fullorðin kona sest upp í Skódann sinn eftir að hafa farið í búð til að kaupa í matinn en þá situr eldri maður í framsætinu sem er orðinn kaldur og aumur, veit ekki hvar hann er eða hver hann er.

„Konan tekur hann með sér heim og hlúir að honum, en brátt taka málin að flækjast. Konan, sem er ekkja og ósköp einmana, finnst ágætt að hafa einhvern til að hugsa um – en má þetta? Má hirða mann sem maður finnur úti á götu og láta engan vita? Leikfélag Hólmavíkur er eitt öflugasta leikfélag landsins og hefur sett upp eina til tvær sýningar árlega undanfarin 40 ár.“
Sýnt verður í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Hægt verður að panta súpu fyrir sýningar.

Miðasölusíminn er 693-3474.

Frumsýning - sunnudaginn, 26. mars kl. 16:00

  1. sýning - laugardaginn, 1. apríl kl. 20:00
  2. sýning - sunnudaginn, 2. apríl kl. 20:00
  3. sýning - skírdag, 6. apríl kl. 20:00

Lokasýning - laugardaginn fyrir páska, 8. apríl kl. 20:00

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir