Miðasala- VÍS BIKARINN
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir
05.03.2024
kl. 14.13
Eitthvað vesen var á miðasölukerfinu þegar selja átti miða á undanúrslitaleik í VÍS bikarnum í hádeginu í dag, því verður gerð önnur tilraun að setja miðasöluna í gang og verður það í dag þriðjudaginn 5.mars kl.16:00.
Meistaraflokkur karla Tindastóls spilar í undanúrslitum VÍS bikarsins gegn Álftanesi þriðjudaginn 19. mars kl. 17:15 í Laugardalshöll.
Á Facebooksíðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að árskortshafar fá sendan tölvupóst með upplýsingum um miðasölu. Á síðunni verður líka hægt að finna link á miðasölu þegar hún fer í gang seinna í dag.
Áfram Tindastóll!