Nautgripir hvorki í neyð né horaðir

Mynd tengist efninu ekki beint. Mynd af dyravernd.is.
Mynd tengist efninu ekki beint. Mynd af dyravernd.is.

Matvælastofnun birtir á heimasíðu stofnunarinnar athugasemd vegna  tilkynningar sem Dýraverndunarsamband Íslands sendi frá sér þann 2. febrúar sl. um dýr í neyð í Skagafirði og kröfu um tafarlausar aðgerðir af hálfu yfirvalda í málinu. Eftirlit Matvælastofnunar sýndi fram á að nautgripir sem um ræðir voru hvorki í neyð né horaðir.

Samkvæmt tilkynningu MAST fór eftirlit stofnunarinnar fram á viðkomandi bæ þann 16. nóvember sl. og var eftirlitið sem óboðað og fór fram vegna ábendingar sem stofnuninni barst um slæman aðbúnað nautgripa á bænum. Frávik um hreinleika nokkurra gripa og athugsemd við herðakambslá var skráð en önnur skoðunaratriði reyndust í lagi.

„Við eftirlitið var ekki mikill skítur undir nautgripum og hálmur var til staðar. Fyrrnefndar athugasemdir voru ekki tilgreindar sem alvarleg frávik og í samræmi við skráð verklag var veittur hefðbundinn frestur til úrbóta.

Í kjölfar eftirlitsins barst stofnuninni önnur ábending um slæman aðbúnað á sama bæ og fylgdi Matvælastofnun ábendingunni eftir þann 6. desember sl. Ekki var tilefni til að skrá frávik. Þann 30. janúar sl. fylgdi Matvælastofnun eftir þriðju ábendingunni sem stofnuninni barst vegna aðbúnaðar á bænum. Ekki var tilefni til að skrá frávik.

Þær myndir sem Dýraverndunarsambandið vísar til í yfirlýsingu sinni og sendar hafa verið til stofnunarinnar gefa ekki rétta mynd af holdafari nautgripanna eða aðstæðum á bænum á fyrrnefndu tímabili. Myndirnar voru ekki í samræmi við aðstæður eins og þær hafa birst eftirlitsmönnum stofnunarinnar í þau þrjú skipti sem stofnunin hefur fylgt eftir ábendingum um umhirðu og aðbúnað nautgripa á bænum og kemur fram í eftirlitsskýrslu stofnunarinnar,“ segir á mast.is en búfjárhald á bænum mun sæta reglubundnu eftirliti áfram.

Tengd frétt: Horaður búfénaður í mykju upp að hnjám

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir