Skipakomur í Hvammstangahöfn
Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að Norska leiðangursskipið Sjovejen liggi nú við bryggju í Hvammstangahöfn. Skipið er 331 brúttótonn og er þar til að taka upp farþega á leið í fjögurra daga siglingu til Grænlands á vegum franskrar ferðaskrifstofu. Rúmar það tólf farþega. Skipið mun hafa þrjár viðkomur í höfninni í febrúar og mars.
Hvammstangi býður Sjovejen, áhöfn þess og gesti, velkomna til hafnar á Hvammstanga.