Sorphirða og -eyðing kostar rúmlega 61 þúsund í Skagafirði

Um áramót tóku gildi ný lög er varða hringrásarhagkerfið og samkvæmt lögunum er sveitarfélögum skylt er að innheimta gjald sem næst raunkostnaði við viðkomandi þjónustu við losun sorps. Söfnun og förgun dýraleifa fellur þar undir.

Fyrstu reikningar fyrir söfnun og förgun dýraleifa í Skagafirði eru í vinnslu og segir í frétt á heimasíðu sveitarfélagsins  að álagning miðist við stærð bústofns samkvæmt búfjárskýrslum. Álagningu ársins er skipt í tíu greiðslur líkt og gert er með fasteignagjöld sveitarfélagsins.

Árlegt sorphirðugjald á íbúð, íbúðarhúsnæði í þéttbýli verður kr. 32.539 og sorpeyðingargjald kr. 28.711 en gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu í Skagafirði má nálgast HÉR.

Fleiri fréttir