Þrír eldislaxar hafa fundist í Húseyjarkvíslinni
Feykir sagði frá því skömmu fyrir helgi að enn hefði ekki fundist eldislax í Staðará og Húseyjarkvísl í Skagafirði en vitað var til þess að einn eldislax hefði fundist í Hjaltadalsá. Nú er komin önnur vika og samkvæmt upplýsingum Valgarðs Ragnarssonar, sem er æðstráðandi í Kvíslinni, þá hafa þrír eldislaxar nú fundist í Húseyjarkvislinni.
Miðað við fréttir síðustu daga er allt morandi í eldislaxi fyrir Norðurlandi. Þannig var sagt frá því í Sporðaköstum á mbl.is að níu eldislaxar hafi verið háfaðir úr laxastiganum í Blöndu í hádeginu í gær og því hafi hátt í 30 eldislaxar verið háfaðir þar á einni viku.
„Það er ógerningur að vita hversu margir laxar eru þegar gengnir í laxveiðiárnar og enn síður hægt að meta hvað er í hafinu fyrir utan Vestanvert landið,“ segir í frétt Sporðakasta.
Á Veiðistaðavefnum segir: „Húseyjarkvísl, með sitt 12 km langa silungasvæði, hefur fest sig í sessi sem ein af bestu og gjöfulustu sjóbirtingsám landsins, og eru boltarnir sem koma á agn veiðimanna ár hvert fjölmargir. Helst er Húseyjarkvíslin þekkt sem sjóbirtingsá, en þar veiðast einnig fallegir laxar, urriði og bleikja. Meðalveiði síðstu ára er um 650 silungar sem telst allgott“