Tímamót við skólaslit Tónlistarskóla Skagafjarðar

Hjónin Margrét Guðbrandsdóttir og Stefán R. Gíslason fengu blóm í tilefni tímamóta þeirra við Tónlistarskóla Skagafjarðar en þau hafa bæði látið af stöfum. Myndir aðsendar.
Hjónin Margrét Guðbrandsdóttir og Stefán R. Gíslason fengu blóm í tilefni tímamóta þeirra við Tónlistarskóla Skagafjarðar en þau hafa bæði látið af stöfum. Myndir aðsendar.

Lokatónleikar og skólaslit Tónlistarskóla Skagafjarðar fóru fram föstudaginn 21. maí sl. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð með þeim takmörkunum sem Covid sóttvarnir krefjast. Alls stunduðu 150 nemendur nám við skólann þetta starfsárið en skólinn hefur fjórar starfsstöðvar í héraðinu; á Hólum, Hofsósi, Sauðárkróki, og í Varmahlíð.

Eins og Feykir hefur áður greint frá lét einn ástsælasti kennari skólans, Stefán R. Gíslason, af störfum eftir áratugastarf og hans ektafrú, Margrét Guðbrandsdóttir, sagði einnig skilið við skólann hvar hún hefur einnig unnið til margra ára. Var þeim hjónum veitt blóm í tilefni tímamótanna og þökkuð þeirra mikla framlag til skólans.

Líkt og fyrri ár voru veittar viðurkenningar úr minningarsjóðum en Arnór Freyr Fjólmundsson og Lilja Diljá fengu viðurkenningu fyrir góðan námsárangur úr minningarsjóði Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttur frá Syðra Vallholti og Einar Ísfjörð Sigurpálsson tók við viðurkenningu úr minningarsjóði Jóns Björnssonar tónskálds.

 

Fleiri fréttir