Viðræður hafnar við sjálfstæðismenn
feykir.is
Skagafjörður
04.06.2014
kl. 09.57
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar oddvita Framsóknarflokksins í Skagafirði eru hafnar viðræður við sjálfstæðismenn um að mynda meirihluta á breiðari grunni og ganga viðræðurnar vel.
Nánar um úrslit kosninganna og viðbrögð við þeim í 21. tölublaði Feykis sem kemur út á morgun, fimmtudaginn 5. júní.
Fleiri fréttir
-
Heldri bílar aka yfir Héraðsvatnabrúna þann 17. júní
Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, er á morgun en það er fæðingardagur Jóns forseta Sigurðssonar. Í Skagafirði munu eigendur eldri og virðulegri bíla taka rúnt í tilefni dagsins líkt og gert hefur verið í áraraðir en að þessu sinni ætla fornbílaeigendur að koma við á gömlu brúnni yfir vesturós Héraðsvatna. Og tilefnið er ekki ónýtt, brúin er 100 ára um þessar mundir.Meira -
Vinna við tvöföldun gagnavers á Blönduósi hafin
Vísir sagði frá því í gær að framkvæmdir væru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis á Blönduósi til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á vinnu allt að 200 manns á verktíma. Haft er eftir Guðmundi Hauki Jakobssyni oddvita sveitarstjórnar Húnabyggðar að á milli 30-40 ný varanleg störf verði til í héraðinu vegna gagnaversins.Meira -
Magnús Barðdal hefur tekið við sem sveitarstjóri Skagafjarðar
„Það er vissulega mikil tilhlökkun að takast á við þetta nýja og spennandi verkefni. Það er mikill heiður að fá að setjast í sæti sveitarstjóra og margt sem þarf að læra. Ég treysti á öflugt starfsfólk sveitarfélagsins til að koma mér hratt og örugglega inn í verkefnin,“ sagði Magnús Barðdal Reynisson nýr sveitarstjóri Skagafjarðar aðspurðu um hvernig nýtt starf legðist í hann en fyrsti starfsdagur nýs sveitarstjóra var nú í gær.Meira -
Inga og Rannveig áfram í vínrauðu
Stólastúlkurnar Inga Sólveig Sigurðardóttir og Rannveig Guðmundsdóttir framlengja við Tindastól og spila áfram með liðinu á næsta tímabili. Israel Martin, þjálfari kvenaliðs Tindastóls, lýsir yfir mikilli ánægju með að Inga og Rannveig hafi framlengt samninga sína við félagið. Hann segir það dýrmætt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu liðsins að halda kjarnanum frá síðustu tveimur tímabilum áfram.Meira -
Viðburðarstýrur Hofsós heim hlakka mikið til
Auður Björk og Vala Kristín eru viðburðarstýrur Hofsós heim, sem haldin verður dagana 18. – 22. júní í ár. Stelpurnar eru báðar uppaldnar í Skagafirði og hafa búið þar meiripart ævinnar. Þær hafa verið vinkonur síðan þær voru unglingar og sinna verkefni viðburðastýru saman. Auður býr í dag á Grindum í Deildardal með Rúnari Páli og þremur börnum. Vala býr á Hofsósi með Helga Hrannari og fimm börnum þeirra. Feykir hafði samband við Auði og Völu og fékk þær til þess að svara nokkrum skemmtilegum spurningum.Meira
