Barnamenningarsjóður Íslands styrkir Sumarleikhús æskunnar

Styrkþegar Barnamenningarsjóðs ásamt forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Mynd af vef stjórnarráðsins.
Styrkþegar Barnamenningarsjóðs ásamt forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Mynd af vef stjórnarráðsins.

Handbendi Brúðuleikhús ehf. á Hvammstanga hlaut styrk úr Barnamenningarsjóði Íslands að upphæð 1,5 milljónir króna fyrir verkefnið Sumarleikhús æskunnar í Húnaþingi vestra. Úthlutað var úr sjóðnum við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í gær, á degi barnsins, og voru þær Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra viðstaddar að því er segir á vef stjórnarráðsins. Verkefnin, sem valnefndin mælir með að hljóti styrki, spanna vítt svið lista og eru lýsandi fyrir víðfeðm áhugasvið barna og ungmenna sem og gróskumikið menningarstarf um landið allt. 

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins í samræmi við ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018 og er átaksverkefni til fimm ára. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. 

Hér má sjá þau sem hljóta styrki úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2019: 

Frétt um Sumarleikhús æskunnar birtist á Feyki.is í vikunni sem leið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir