Bogfimisamband Íslands stofnað

Fyrsta stjórn Bogfimisambands Íslands ásamt þingforseta og framkvæmdastjóra ÍSÍ. Frá vinstri: Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri, Albert Ólafsson, Astrid Daxböck, Ólafur Gíslason nýkjörinn formaður, Ásdís Lilja Hafþórsdóttir, Guðmundur Örn Guðjónsson, Alfreð Birgisson og Hafsteinn Pálsson 2. varaforseti ÍSÍ. Mynd: isi.is.

Stofnþing Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þann 1. desember sl. Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 33 talsins.

Á heimasíðu ÍSÍ segir að bogfimiíþróttin á Íslandi eigi rætur sínar að rekja til íþróttafélaga um íþróttir fatlaðra og fyrstu skipulögðu æfingar í bogfimi hér á landi voru hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík. Bogfimi var þó alltaf bæði stunduð af fötluðu og ófötluðu íþróttafólki. Bogfiminefnd ÍSÍ hefur verið starfandi innan vébanda ÍSÍ um langt skeið og haft umsjón með útbreiðslu og uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi, undir leiðsögn ÍSÍ. Undanfarin ár hefur svo verið unnið markvisst að stofnun sérsambands um bogfimi enda íþróttin vaxið hratt á landsvísu. Íþróttin er nú stunduð í tíu íþróttafélögum innan vébanda níu íþróttahéraða.

Ólafur Gíslason var kjörinn fyrsti formaður sambandsins en aðrir í stjórn BFSÍ voru kjörin til fjögurra ára þau Guðmundur Örn Guðjónsson varaformaður og Ásdís Lilja Hafþórsdóttir ritari og Albert Ólafsson gjaldkeri og Haraldur Gústafsson meðstjórnandi til tveggja ára.

Varamenn stjórnar eru Astrid Daxböck, Alfreð Birgisson, Kelea Quinn.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir