Brúðuleikverkið Sæhjarta frumsýnt á Hvammstanga

Mynd:Handbendi brúðuleikhús.
Mynd:Handbendi brúðuleikhús.

Brúðuleikhúsið Handbendi frumsýnir verkið Sæhjarta eftir Gretu Clough í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 11. febrúar næstkomandi klukkan 20:00. Sæhjarta er einleikið brúðuleikverk fyrir fullorðna og er það höfundurinn, Greta Clough, sem fer með hlutverk í verkinu. Leikstjóri er Sigurður Líndal, tónlist og hljóðmynd eru í höndum Júlíusar Aðalsteins Róbertssonar og Egill Ingibergsson sér um leikmynd og lýsingu.

Í Sæhjarta er sögð margslungin furðusaga konu með heillandi blöndu brúðuleiks og hefðbundins leikhúss, segir í fréttatilkynningu frá Handbendi. Verkið endurskapar og endurvekur gömlu sagnirnar um urturnar sem komu á land og fóru úr selshamnum til að búa og elska meðal manna. Verkið er ekki ætlað börnum undir 16 ára að aldri þar sem það inniheldur atriði og lýsingar á kynífi, ofbeldi og nekt.

Handbendi Brúðuleikhús er brúðu/leikhús með höfuðstöðvar á Hvammstanga þar sem leikhúsið setur upp frumsamdar sýningar sem ferðast um allan heim. Leikhúsið er leitt af Gretu Clough, fyrrum listamanni hússins hjá hinu heimsfræga Little Angel Theatre í London. Greta hefur unnið til verðlauna fyrir gæði og frumleika í brúðulistum, og sem leikskáld.  

Sæhjarta verður einnig sýnt í Tjarnarbíói í Reykjavík dagana 14., 19. og 27. febrúar. Sýningarnar hefjast allar klukkan 20:00. Sæhjarta er stutt af launasjóði sviðslistamanna og sviðslistasjóði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir