Dagbjört Dögg Íþróttamaður USVH árið 2019

Dagbjört Dögg Karlsdóttir. Aðsend myd.
Dagbjört Dögg Karlsdóttir. Aðsend myd.

Dagbjört Dögg Karlsdóttir var kjörin Íþróttamaður USVH árið 2019 en útnefningin fór fram á Staðarskálamótinu í körfubolta sem haldið var í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga þann 28. desember sl. Dagbjört Dögg spilar körfubolta með úrvalsdeildarliði Vals og var valin besti varnarmaður liðsins á tímabilinu og eins og fram kemur á heimasíðu USVH varð Dagbjört Íslands-, bikar- og deildarmeistari á liðnu ári.

Dagbjört er í 6. sæti yfir stigahæstu Íslendingana í úrvalsdeild kvenna og skilar að meðaltali 11,22 stigum í leik og hefur nokkrum sinnum verið valin í lið umferðarinnar í Dominos-deildinni. Dagbjört var fyrirliði U20 landsliðs kvenna og var hún framlags- og stigahæst í liðinu á Evrópumótinu í Kósovó og valin í lokahóp A-landsliðsins kvenna sl. haust.

Í öðru sæti varð Jóhann B. Magnússon knapi úr Hestamannafélaginu Þyt. Jóhann varð í 1.sæti í 100m skeiði á Reykjavíkurmeistaramótinu og 3. sæti í 100m skeiði á Íslandsmótinu. Hann varð alls átta sinnum í 1. sæti í skeiði og alls 34 sinnum í verðlaunasæti á árinu. Jóhann er í 2. sæti á WR heimslistanum í 100 m skeiði með meðaltalstímann 7,39 og var tilnefndur sem skeiðknapi ársins af Landsambandi hestamannafélaga sem og knapi ársins hjá Hestamannafélaginu Þyt.

Í þriðja sæti varð Helga Una Björnsdóttir knapi úr Hestamannafélaginu Þyt. Helga er Íslandsmeistari í T2 slaktaumatölti og varð Reykjavíkurmeistari í sömu grein. Helga var valin í landsliðhóp Íslands sem tók þátt á heimsmeistaramótinu í Berlín.

Tengd frétt: Vann alla titla sem í boði voru

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir