Degi íslenskrar náttúru fagnað um allt land nema á Norðurlandi vestra

Örnefni, stjörnur, náttúruljóð, jarðfræði, jurtalitun, útikennsluapp, laxalíf, kipulagsuppdrættir,  náttúruratleikur og kvikmyndafrumsýning er meðal þess sem almenningi gefst kostur á að kynna sér og njóta á Degi íslenskrar náttúru, sem fagnað verður um allt land á mánudag, 16. September, segir í tilkynningu fráumhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Þegar að er gáð standa allir landshlutar fyrir einhverskonar dagskrá en enga er að finna hjá íbúum Norðurlands vestra.
Í tilefni dagsins mun Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra veita fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á sérstakri hátíðarsamkomu við Elliðavatnsbæinn sem hefst klukkan 13:30 á mánudag. 
Eftirtaldir eru tilnefndir til Fjölmiðlaverðlaunanna nú:
• Guðbjörg Gissurardóttir, ritstjóri tímaritsins Í boði náttúrunnar
• Páll Steingrímsson, kvikmyndagerðarmaður 
• Svavar Hávarðsson, blaðamaður á Fréttablaðinu
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti er veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.  
Víða verða söfn opin almenningi og má þar nefna Náttúrugripasafnið í Neskaupstað, Surtseyjarstofu í Vestmannaeyjum og Sagnagarð fræðslu- og kynningarsetur Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti. Þá býður Náttúrustofa Suðausturlands til stjörnuskoðunar í stjörnuverinu í Nýheimum á Höfn.
Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir