Fertugasti árgangur Húna kominn út

Fertugasti árgangur Húna, ársrits Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga er kominn út. Í ritinu er að finna frásagnir, greinar, ljóð og fréttir úr héraði auk þess sem látinna er minnst. Meðal efnis í ritinu er greinin Fljótlega urðu mínir steinar stærri en hans, viðtal við Sigurbjart Frímannsson og Sigrúnu Ólafsdóttur og einnig frásögn Ármanns Péturssonar frá dvöl sinni í Ástralíu. Útgáfa ritsins er styrkt af Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra.

Húni er til sölu hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga en einnig í áskrift með því að senda tölvupóst á usvh@usvh.is eða hjá Eygló framkvæmdastjóra í síma 844-0939. /FE

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir