Fyrsta beina flugið frá Hollandi til Norðurlands að vetrarlagi

Eins og á komandi sumri, var flogið frá Rotterdam til Akureyrar en í vetrarferðunum nú er flogið frá Amsterdam. Alls verða farnar átta ferðir til Norðurlands, tvisvar í viku fram til 9. mars. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands.
Eins og á komandi sumri, var flogið frá Rotterdam til Akureyrar en í vetrarferðunum nú er flogið frá Amsterdam. Alls verða farnar átta ferðir til Norðurlands, tvisvar í viku fram til 9. mars. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands.

Flugvél hollenska flugfélagsins Transavia lenti á Akureyrarflugvelli á laugardagsmorgun, með fyrstu farþegana sem koma til Norðurlands í vetur á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel. Þetta er í fyrsta sinn sem það félag býður upp á beint flug frá Hollandi til Norðurlands að vetrarlagi, en ferðaskrifstofan bauð upp á sumarferðir árið 2019 sem vöktu mikla lukku.

Í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands kemur fram að þá, eins og á komandi sumri, var flogið frá Rotterdam til Akureyrar en í vetrarferðunum nú er flogið frá Amsterdam. Alls verða farnar átta ferðir til Norðurlands, tvisvar í viku fram til 9. mars.

Þá segir í tilkynningunni að nýverið hafi ILS aðflugsbúnaður verið tekinn í notkun á Akureyrarflugvelli og var Transavia fyrsta flugfélagið sem nýtir þennan búnað til aðflugs í reglubundnu millilandaflugi. Ljóst þyki að slíkur búnaður skiptir miklu máli fyrir flugfélagið, eins og öll önnur flugfélög og auðveldar aðflugið til muna frá því sem áður var.

„Ferðaskrifstofa Akureyrar hefur einnig boðið upp á ferðir til Amsterdam í samstarfi við Voigt Travel og má með sanni segja að Norðlendingar hafi gripið tækifærið til að skreppa til hollensku höfuðborgarinnar, jafnvel svo mikið að uppselt er í nokkrar flugferðir eða fá sæti laus,“ segir í skeyti arkaðsstofunnar. „Eins og áður segir mun Voigt Travel áfram skipuleggja sumarferðir til Norðurlands frá Rotterdam, einu sinni í viku frá byrjun júní til loka ágúst, og að auki geta Íslendingar áfram keypt sér ferðir til Hollands í sumar eins og verið hefur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir