Heimsfrumsýna Skógarlíf á Hvammstanga

Leikflokkur Húnaþings vestra setur upp Skógarlíf á aðventunni en þá mun frumskógurinn vakna til lífsins og hægt að fylgjast með magnaðri þroskasögu og ævintýrum Móglí, sem elst upp meðal dýra í skóginum. Skógarlíf er glæný leikgerð eftir Gretu Clough sem unnið hefur til alþjóðlegra verðlauna bæði sem leikskáld og sviðslistamaður. Leikgerðin er byggð á the Jungle Book eftir Rudyard Kipling. En auk þess að skrifa handritið leikstýrir Greta einnig verkinu.

„Það er okkur í Leikflokk Húnaþings vestra sönn ánægja að kynna heimsfrumsýningu á þessu verki í félagsheimilinu á Hvammstanga dagana 13.-15. desember. Miðasala fer fram á heimasíðu leikflokksins www.leikflokkurinn.is

Áhorfendur fá að kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum sögupersónum, tónlist og hönnun undir indverskum áhrifum í framsetningu fjölbreytts og hæfileikaríks hóps fólks úr Húnaþingi vestra. Þetta er ævintýri sem þið megið alls ekki missa af,“ segir í tilkynningu frá Leikflokki Húnaþings vestra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir