Heimsóknarbann á sjúkrahúsið á Hvammstanga

Þar sem lýst hefur verið yfir neyðarstigi Almannavarna vegna Covid-19 veirunnar hefur Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga ákveðið að fylgja fordæmi margra annarra stofnana og sett á heimsóknarbann á deildir sjúkrahússins, nema í sérstökum undantekningartilfellum.

Í þeim tilfellum þarf þá að afa samband við vakthafandi hjúkrunarfræðing í síma 432 1310. Í tilkynningu frá HVE segir að þessi íþyngjandi ákvörðun sé tekin í samráði við sóttvarnalækna heilbrigðisumdæmisins og gildir bannið í óákveðinn tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir