Íslandsmót yngri hestamanna
Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna í hestaíþróttum fer fram á Hvammstanga 12. til 15. ágúst nk. Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH og er síðasti skráningardagur 29. júlí.
Keppnisgreinar á mótinu eru:
- Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur
- - Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur
- - Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur
- - Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur
- - Skeið 100m (flugskeið)
- - Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur
- - Fimikeppni A2 ungmennaflokkur - Töltkeppni T2
Formaður mótanefndar er Sigrún Þórðardóttir s. 660-5826 og veitir hún allar nánari upplýsingar. Umsjónarmaður keppnishrossa er Steinbjörn Tryggvason s. 893-5070
Tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi verður með tilboð fyrir mótsgesti Íslandsmóts en vert er að geta þess að Útilegukortið gildir ekki þessa vikuna.