Landselsstofninn fækkað um 30% árlega frá 2011
Niðurstöður landselstalninga 2014 gefa til kynna að landselsstofninn hafi fækkað um 30% árlega á tímabilinu 2011 – 2014, þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela á Íslandi. Árið 2011 var stofninn metin til 11-12.000 dýr. Þetta kemur fram á vef Selaseturs Íslands.
Samkvæmt vefnum voru landselir (Phoca vitulina) taldir í nokkrum helstu landselslátrum á Íslandi í júlí, ágúst og september 2014; á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Samanburður var gerður með því að telja úr Cessna yfirþekjuflugvél á hefðbundinn hátt og með því að telja á myndum teknum úr ómönnuðu loftfari (flygildi). Einnig var flogið yfir Vatnsnes með þyrilvængju Landhelgisgæslunnar og landselir taldir af stafrænum myndum sem teknar voru úr þyrlunni.
„Samanburður á hefðbundnum talningum úr flugvél og talningum úr flygildi leiða í ljós að lítil munur sé á marktækni talningargagna, en aftur á móti teljum við öryggi talningarmanna vera meira við notkun flygilda samanborið við notkun Cessnuflugvélar. Ljóst er þó að notkun flygilda er mun tímafrekari og Cessna yfirtekju flugvél kemst yfir stærri talningarsvæði á styttra tíma. Þess vegna er líklega ekki sparnaður við notkun flygildi,“ segir á vefnum.
Samanborið við niðurstöður talninganna 2011 þegar stofnstærðarmat var gert, er fjöldi landsela í þeim látrum sem skoðuð voru nú (2014) yfirleitt mun minni. Sem fyrr segir benda þessar niðurstöður til þess að þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela á þessum sem öðrum svæðum á Íslandi hafi landselsstofninn hafi fækkað um 30% árlega á tímabilinu 2011 – 2014.
„Gæta skal að því, að til þess að hægt verði að segja til um ástand landselsstofnsins í heild á Íslandi verður að telja oftar en einu sinni í hverju látri og fara yfir alla ströndina eða svo gott sem. Í ár var þessi kostur hinsvegar ekki inni í myndinni vegna skorts á fjármagni,“ segir á vefnum.
Jafnframt er tekið fram að þar sem vísbendingar séu um það að landselsstofninn hafi minnkað mikið, og sé nú langt undir viðmiðunarmörkum sem miða við stofnstærð ársins 2006, er mikilvægt að meta stofnstærð hans árið 2015, en þá eru liðin 4 ár frá síðustu sambærilegu talningu.
Verkefnið var styrkt af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og unnið í samstarfi Veiðimálastofnunar, Selaseturs Íslands, Varar sjávarrannsóknarseturs og Svarma ehf.
Skýrsluna má lesa á vef Selaseturins.