Listar í framboði fyrir alþingiskosningar 2013

Landskjörstjórn sendi frá sér tilkynningu í gær sem telur upp þá lista sem verða í framboði fyrir alþingiskosningar 27. apríl 2013.

Eftirtaldir listar verða bornir fram í öllum kjördæmum landsins við komandi alþingiskosningar:

A-listi:   Björt framtíð

B-listi:   Framsóknarflokkur

D-listi:   Sjálfstæðisflokkur

G-listi:   Hægri grænir, flokkur fólksins

I-listi:     Flokkur heimilanna (hét áður Lýðveldisflokkurinn)

J-listi:    Regnboginn, fyrir sjálfstæði Íslands og sjálfbæra þróun

L-listi:    Lýðræðisvaktin

S-listi:    Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands (hét áður Samfylkingin)

T-listi:    Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði (hét áður Borgarahreyfingin – Þjóðin á þing. Hafði þá listabókstafinn O)

V-listi:   Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Þ-listi:   Píratar

 

Eftirfarandi listar verða bornir fram í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður:

H-listi:   Húmanistaflokkurinn

R-listi:   Alþýðufylkingin

 

Eftirfarandi list er boðinn fram í Reykjavíkurkjördæmi suður:

K-listi:

Sturla Jónsson, K-listi (hét áður Framfaraflokkurinn)

 

Eftirfarandi list er boðinn fram í Norðvesturkjördæmi:

M-listi:  Landsbyggðarflokkurinn

Fleiri fréttir