Maður ársins á Norðurlandi vestra
Eins og undanfarin ár auglýsir Feykir eftir tilnefningum um mann ársins á Norðurlandi vestra. Tilnefningunni skal koma til Feykis á netfangið palli@feykir.is í síðasta lagi fyrir miðnætti 15. desember nk.
Tilgreina skal nafn og gera stutta grein fyrir fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt.