Mannbjörg er bátur sökk

Frá Hvammstanga. Mynd:http://www.northwest.is
Frá Hvammstanga. Mynd:http://www.northwest.is

Mannbjörg varð þegar fiskibátur sökk um eina sjómílu frá landi við Hvammstanga um klukkan hálf fimm í morgun. Í fréttum RÚV er haft eftir lögreglu að talið sé að báturnn hafi rekist á sker þar sem hann var á landleið og leki komist að honum.

Tilkynning barst björgunaraðilum um kl. hálf fjögur í morgun og fór björgunarsveit á vettvang og einnig var þyrla Landhelgisgæslunnar send af stað en snúið við þegar ljóst var að tekist hefði að bjarga mönnunum. Þrír menn voru um borð í bátnum og eru þeir allir heilir á húfi.

Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Norðurlandi vestra og Rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir