Maríudagar um næstu helgi

Frá Maríudögum á síðasta ári. Mynd: Andrés Þórarinsson.
Frá Maríudögum á síðasta ári. Mynd: Andrés Þórarinsson.

Dagana 29. júní og 30. júní verða Maríudagar haldnir á Hvoli í Vesturhópi klukkan 13.-18 báða dagana. Þetta er í tíunda sinn sem Maríudagar hafa verið haldnir en það er gert í minningu Maríu Hjaltadóttur frá Hvoli. Það er fjölskyldan frá Hvoli sem stendur að þessum árlega viðburði. 

Að þessu sinni mun Vala Jóhannsdóttir í Borgarnesi sýna málverk sín og Marinó Björnsson á Laugarbakka sýnir vatnslitamyndir og verk með blandaðri tækni þar sem hann notar íslensku fjármörkin, unnin með sérstökum aðferðum, oðrun og marmaramálun sem byggist á gömlum aðferðum sem notaðar voru til að skreyta hýbýli manna hér áður fyrr.

Í tengslum við Maríudaga verður haldin „hestamannamessa“ sunnudaginn 30. júní að Breiðabólstað, sem er næsti bær við Hvol. Þá fara hestamenn ríðandi frá Hvoli, aðrir fara akandi og enn aðrir gangandi til messu og til baka að Hvoli þar sem drukkið verður messukaffi.

Kaffið er í boði stórfjölskyldunnar frá Hvoli og sóknarnefndar og eru allir hjartanlega velkomnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir