Ný reglugerð um sektir við brotum á umferðarlögum tók gildi í gær

Í gær, þann 1. janúar 2020, tók gildi ný reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna umferðarlagabrota til samræmis við ný umferðarlög nr. 77/2019 sem einnig tóku gildi sama dag og má finna helstu ný­mæli nýju laganna í samantekt á vef Sam­göngu­stofu. Meðal breytinga skv. reglugerðinni má nefna að sekt við akstri gegn rauðu ljósi hækkar úr 30 þúsund krónum í 50 þúsund krónur og að sektir við ölvunarakstri eru hertar. 

Helstu breytingar vegna reglugerðarinnar eru eftirfarandi: 

  • Akstur gegn rauðu ljósi. Sekt hækkar úr 30.000 kr. í 50.000 kr.
  • Vegfarandi sinnir ekki skyldu við umferðaróhapp. Sekt verður 30.000 kr. Var 20.000-30.000 kr. eftir broti. 
  • Ölvunarakstur: 
    - Vínandamagn í blóði 1,20-1,50‰ eða útöndunarlofti 0,60-0,75 mg/l.: Svipting ökuréttar í 1 ár og 6 mánuði  og 180.000 kr. sekt. Var 1 ár og 180.000 kr. sekt.
    - Vínandamagn í blóði 2,01-2,50‰ eða útöndunarlofti 1,01 -1,25 mg/l. Nýtt þrep í töflu. Svipting ökuréttar í 3 ár og 240.000 kr. sekt. Efsta þrep í töflu var 2,01‰ eða meira og svipting ökuréttar í 2 ár og 210.000 kr. sekt.
    - Vínandamagn í blóði 2,51‰ eða meira eða útöndunarlofti 1,26 mg/l eða meira. Nýtt efsta þrep í töflu. Svipting ökuréttar í 3 ár og 6 mánuði og 270.000 kr. sekt. 
  • Fíkniefninu metamfetamín er bætt við töflu fyrir viðurlög vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna.
  • Ein sektarfjárhæð fyrir hvert brot á aksturs- og hvíldartíma í stað þess að miða við prósentur. 
  • Vanræksla flytjanda á að tryggja varðveislu upplýsinga úr ökurita og af ökumannskorti hækkar úr 20.000-50.000 kr. í 80.000-300.000 kr.  
  • Þrepaskiptar sektarfjárhæðir fyrir brot á reglum um ásþunga/heildarþunga umfram leyfilega heildarþyngd í stað þess að miða við prósentur. 
    - ásþungi/heildarþungi allt að 375 kg umfram leyfilega þyngd verður 60.000 kr.,
    - ásþungi/heildarþungi allt að 750 kg umfram leyfilega þyngd verður 120.000 kr. 
    - ásþungi/heildarþungi allt að 1.500 kg umfram leyfilega þyngd verður 180.000 kr. 
    - ásþungi/heildarþungi meira en 1.500 kg allt að 5.000 kg umfram leyfilega þyngd verður 240.000 kr.
    10.000 kr. sektarfjárhæð fyrir hver 100 kg umfram 2.000 kg.
  • Brot á reglum um flutning á hættulegum farmi. Sektir verða frá 50.000-150.000 kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir