REKO Norðurland með afhendingar í vikunni

Frá REKO afhendingu á Blönduósi síðasta vetur.
Frá REKO afhendingu á Blönduósi síðasta vetur.

Á fimmtudag og föstudag, 3. og 4. október, verða REKO afhendingar á Norðurlandi en þar er um að ræða milliliðalaus viðskipti við framleiðendur á svæðinu. REKO Norðurland var stofnað seint á síðasta ári og voru nokkara afhendingar í fyrravetur en nú er verið að taka upp þráðinn að nýju.

Markmiðin með REKO eru m.a. að koma upp sölu- og dreifingarkerfi sem sparar tíma og peninga, að auka viðskipti með vörur úr héraði og efla nærsamfélagsneyslu og gera matarhandverki og heimavinnslu hærra undir höfði.

Viðskiptin fara þannig fram að stofnaðir eru hópar á Facebook undir nafninu REKO Norðurland og þurfa áhugasamir að sækja um inngöngu í hópinn til þess að geta pantað vöru. Framleiðendur kynna þá vöru sem í boði er á hverjum stað fyrir sig og neytendur leggja inn pöntun og greiða fyrir vöruna áður en afhendingin á sér stað.

Afhendingin í þessari viku verður sem hér segir:

  • Á Blönduósi í versluninni Húnabúð, fimmtudaginn 3. október klukkan 12:00-13:00.
  • Á Sauðárkróki á N1 í Ábæ, fimmtudaginn 3. október klukkan 16:00-17:00.
  • Á Akureyri í anddyri Jötunn véla á Lónsbakka föstudaginn 4. október klukkan 16:00-17:00.

Hægt er að afla sér nánari upplýsinga um REKO og sölufyrirkomulagið á slóðunum  https://mataraudur.is/reko-a-islandi/ og https://mataraudur.is/reko-algengar-spurningar-og-svor-fyrir-framleidendur/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir