Slapp með minniháttar meiðsli
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
23.07.2015
kl. 10.27
Á föstudaginn í síðustu viku varð umferðaróhapp í Blönduhlíð í Skagafirði. Um var að ræða aftanákeyrslu og þurfti að klippa farþega úr öðrum bílnum, sem þó slapp með minniháttar meiðsl.
Helgin var nokkuð róleg að sögn lögreglu, þó margt fólk hafi verið á svæðinu. Lögregla var við hefðbundið eftirlit og var lítið um hraðaakstur.
Fleiri fréttir
-
Stefán Vagn nýr þingflokksformaður Framsóknar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 11.03.2026 kl. 14.33 oli@feykir.isStefán Vagn Stefánsson er nýr þingflokksformaður Framsóknar. Tillaga þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi flokksins í Smiðju í dag, 11. mars 2026. Stefán Vagn er oddviti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi og hefur gegnt embætti varaþingflokksformans á kjörtímabilinu. Stefán hefur setið á Alþingi frá árinu 2021.Meira -
Löngu komið að þolmörkum hjá öllum
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 11.03.2026 kl. 14.13 oli@feykir.isÍ forsíðufrétt 10. tölublaðs Feykis sem kom út í morgun var sagt frá því að Selma Barðdal skólameistari FNV og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar hefðu fundað með Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra í upphafi síðustu viku vegna viðbyggingar við verknámshús skólans sem beðið hefur verið eftir í mörg ár. Selma tjáði Feyki að fundurinn hafi verið afar góður og virkilega lausnamiðaðar samræður átt sér stað. „Kom fram ríkur velji ráðherra til að undirbúningi verðið hraðað svo framkvæmdir geti hafist sem fyrst,“ sagði Selma.Meira -
Gildran verður með afmælistónleika í Hofi 21. mars
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni 11.03.2026 kl. 13.41 oli@feykir.isHljómsveitin Gildran fagnar nú um mundir 40 ára starfsafmæli með tónleikahaldi víða um land. Síðast léku þeir félagar fyrir fullu Háskólabíói á geysi velheppnuðum tónleikum og nú er komið að Hofi á Akureyri. Feykir hafði veður af því að hljómsveitin hafi undirbúið þessa tónleika sína talsvert á Hofsósi og lék blaðamanni m.a. forvitni á að vita tilurð þess og ýmislegt annað um þessa landsþekktu og rótgrónu hljómsveit.Meira -
Fólki fækkaði á Norðurlandi vestra síðustu þrjá mánuði
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 11.03.2026 kl. 10.35 oli@feykir.isHúnahornið segir frá því að síðastliðna þrjá mánuði hefur íbúum á Norðurlandi vestra fækkað um 38 eða um hálft prósent. Þann 1. mars síðastliðinn var íbúafjöldinn 7.577 en 1. desember 2025 voru íbúar landshlutans 7.615 talsins. Mest er fækkunin í Skagafirði eða um 23 íbúa en annars fækkar í öllum sveitarfélögunum fjórum. Á Skagaströnd fækkar um átta íbúa, í Húnabyggð um fimm og í Húnaþingi vestra fækkar um tvo.Meira -
Þátttakan í ENBL-deildinni hefur gert okkur að betra liði
Það er stórleikur á Króknum í kvöld – enn og aftur – en taka Tindastólsmenn á móti Letttunum í Riga Zelli í 16 liða úrslitum ENBL-deildarinnar í körfubolta. Nú er bestu liðin eftir í keppninni en vonandi reynist heimavöllurinn drjúgur í kvöld. Arnar Björnsson sagði í spjalli við Feyki að leikurinn leggðist vel í hann. „Við vitum að þetta verður erfitt en við teljum okkur eiga möguleika ef við spilum okkar leik og höldum einbeitingu allan tímann,“ segir Arnar (leikmaður).Meira
