Stafrænt forskot NMÍ á Sauðárkróki

Stafrænt forskot, markaðssetning á samfélagsmiðlum, er verkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem unnið er í samstarfi við landshlutasamtök og markaðsstofur um allt land með stuðningi Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. „Fyrir fyrirtæki er þetta gríðarleg tækifæri sem liggja í því að nýta stafræna tækni í markaðssetningu,“ segir í tilkynningu frá NMÍ.

„Mörg fyrirtæki, ekki síst á landsbyggðinni, geta gert betur í þeim efnum. Víða er stafræn tækni að breyta vörum, þjónustu og viðskiptalíkönum þannig að ljóst er að þau fyrirtæki sem ekki hagnýta stafræna tækni sitja eftir og hreinlega eiga ekki möguleika. Þess vegna er það mikilvægt fyrir fyrirtæki að auka þekkingu sína og getu til að bæta samkeppnishæfni sína, efla nýsköpun og auka skilvirkni. Þetta þurfa fyrirtækin að gera til að geta vaxið og orðið við kröfum viðskiptavina sinna,“ segir í tilkynningunni en með aukinni stafrænni tækni og þekkingu geta fyrirtækin átt í árangursríkri samskiptum við viðskiptavini sína, auðveldar þeim að ná í nýja viðskiptavini og nýja markaði, auk þess sem hægt er að ná niður kostnaði.

„Stafrænt forskot er röð vefrita og vinnustofa byggt á efni frá Business Gateway í Skotlandi. Verkefnið gengur út á uppbyggingu stafrænnar hæfni í íslenskum fyrirtækjum. Áhersla er á fyrirtæki sem eru ekki brautryðjendur í hagnýtingu stafrænnar hæfni. Markmið verkefnisins er að miðla þekkingu og aðferðum til fyrirtækja sem vilja nýta stafræna tækni til að auka samkeppnishæfni.“

Vinnustofur hafa verið á fjórum stöðum á landinu, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Vestmannaeyjum en nú verða þær einnig á Sauðárkróki og Selfossi í janúar og febrúar.

Á þessum vinnustofum  fá þátttökufyrirtæki fræðslu um stafræna tækni og gildi hennar í nútíma samkeppni og læra hagnýtar leiðir til að nýta sér helstu tæki og tól til að efla stafrænna færni sína. Vefsíður, samfélagsmiðlar, markaðir, markhópar skoðaðir fyrir hvert fyrirtæki sem tekur þátt.  Þau fyrirtæki sem taka þátt í vinnustofunum geta svo sótt um styrk allt að 600.000 kr til að efla sig í markaðssetningu á vef- og samfélagsmiðlum.

Það er opið fyrir skráningu á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sjá HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir