Svartþrestir bárust til Norðurlands með óveðri síðustu viku

Mikið af svartþröstum barst til Norðurlands með óveðri síðustu viku. Hér má sjá karlfugl gæða sér á epli á trjágrein. Mynd: Einar Ó. Þorleifsson/nnv.is
Mikið af svartþröstum barst til Norðurlands með óveðri síðustu viku. Hér má sjá karlfugl gæða sér á epli á trjágrein. Mynd: Einar Ó. Þorleifsson/nnv.is

Svo virðist vera sem lægðin, er skall á landið fyrir helgi, hafi gripið með sér fjölda farfugla sem væntanlega hafa verið á leið yfir Norðursjó milli Bretlandseyja, Danmerkur og Noregs, og beint þeim til landsins. Sagt er á heimasíðu Náttúrustofu Norðurlands vestra að sennilegast hafi fuglarnir í fyrstu borist langt í norður og svo smám saman rangsælis um lægðarmiðjuna frá norðri til vesturs og svo aftur til suðurs upp að norðurströnd Íslands. Margir þeirra enduðu á Norðurlandi vestra.

Fram kemur á nnv.is að mest hafi orðið vart við fuglakomurnar á norðaustanverðu landinu og alla leið vestur til Skagafjarðar en flestir fuglanna eru svartþrestir.

„Sérstaklega kom mikið af svartþröstum heim að bæjum í Hegranesi um helgina síðustu. Fuglarnir fóru inn í útihús eða norpuðu við heymoð utandyra. Af öðrum fuglategundum sem sést hafa eru mistilþröstur, söngþröstur, gráþröstur, hagaskvetta og sönglævirki af hópi spörfugla.

Vaðfuglar voru einnig á ferðinni og ber þar helst að geta vepju, skógarsnípu og dvergsnípu. Sumar þessara fuglategunda verpa nú hérlendis, til dæmis skógarsnípan og svartþrösturinn sem eru með smáa stofna. Aðrar hafa orpið hér af og til eins og gráþröstur. Verði vorið milt og lifi fuglarnir af er ekki ósennilegt að varp þessara fuglategunda kunni að aukast hérlendis.“ Í frétt NNV segir einnig að lítill stofn svartþrasta verpi nú árvisst á Norðurlandi vestra en helstu varpstaðirnir eru við Sauðárkrók og Varmahlíð en einnig hefur orðið vart svartþresti að sumarlagi við Silfrastaði og Hóla í Hjaltadal. Svartþrestir verpa einnig á Skagaströnd, Blönduósi og á Hvammstanga.

„Af öðrum fuglum sem fundist hafa á Norðurlandi vestra í vetur má nefna nokkrar tegundir. Gráþrestir hafa verið allvíða í vetur, til dæmis á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd, Sauðárkróki, Varmahlíð og við Steinsstaði. Þá hefur verið glóbrystingur á Sauðárkróki. Við hveravatnsafrennsli hjá Laugarbakka í Miðfirði hafa sést skógarsnípa, dvergsnípa og átta hrossagaukar. Kynblendingur æðakóngs og æðarfugls hefur haldið til í vetur með æðarfuglum við innanverðan Hrútafjörð nærri bænum Hvalhöfða. Síðla hausts var ljóshöfðaönd með rauðhöfðaöndum á Flóðinu í Vatnsdal. Ljóshöfðaöndin er flækingsfugl frá Norður-Ameríku. Fálkar og ernir hafa víða sést. Fálkarnir hafa þurft að gera sér að góðu ýmsa fugla, til dæmis máfa þar sem almennt er frekar lítið af rjúpu. Smyrlar sjást víða en þeir elta mest hópa snjótittlinga. Fágætasti fuglinn sem fundist hefur í vetur var hánorrænn fugl af máfakyni sem nefnist ísmáfur sá fugl hélt til við höfnina á Sauðárkróki.“

Sjá nánar á nnv.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir