Sýrlensku börnin fá ullarsokka og vettlinga

Anton Scheel Birgisson og Liljana Milenkoska, verkefnastjóri, sem tók við gjöfinni fyrir hönd barnanna. Mynd:hunating.is.
Anton Scheel Birgisson og Liljana Milenkoska, verkefnastjóri, sem tók við gjöfinni fyrir hönd barnanna. Mynd:hunating.is.

Nú er kalt í veðri og því betra að klæða sig vel. Sýrlensku börnin í Húnaþingi vestra ættu þó ekki að þurfa að kvíða vetrarkuldanum því í dag kom Anton Scheel Birgisson, framkvæmdastjóri USVH, færandi hendi á skrifstofu sveitarfélagsins og afhenti, fyrir hönd ömmu sinnar, Helgu Kristinsdóttur frá Þorlákshöfn, öllum sýrlensku börnunum vettlinga og ullarsokka.  

Þegar Helga, sem er 80 ára, heyrði af komu flóttamannanna í Húnaþing vestra vildi hún leggja sitt af mörkum og sagðist ekki hafa neitt betra að gera en prjóna á þau þrettán börn sem komu á Hvammstanga, að því er segir á vef Húnaþings vestra.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir