Telja ekki tímabært að ráðast í víðtækari sameiningarviðræður

Á síðasta fundi sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu var samþykkt að bjóða öðrum sveitarfélögum á Norðurlandi vestra, þ.e. Akrahreppi, Húnaþingi vestra og Sveitarfélaginu Skagafirði, aðild að sameiningarviðræðunum og var þeim sent erindi þess efnis.

Erindið var tekið fyrir á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 11. mars sl. Í fundargerð segir að þrátt fyrir að byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar sé jákvætt fyrir frekari sameiningum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra telji það þó „að eðlileg næstu skref af þess hálfu séu viðræður um sameiningu sveitarfélaganna í Skagafirði. Með því sé fyrst látið reyna á sameiningarvilja sveitarfélaga sem hafa áratugalanga reynslu af öflugu og mjög nánu samstarfi áður en ráðist sé í viðræður um á margan hátt flóknari sameiningar fleiri sveitarfélaga á mun stærra landsvæði. Sá tími kann þó að renna upp innan fárra ára ef stjórnvöld fylgja eftir fyrirheitum um styrkingu innviða sem eru á forræði ríkisins á svæðinu, s.s. í bættum samgöngum, fjarskiptum og öruggari orkuafhendingu og með því stækkun þjónustu- og vinnusóknarsvæða, auk styrkingar tekjustofna sveitarfélaga og tilfærslu verkefna sem eðlilegt er að sinnt sé í nærsamfélögum íbúanna,“ segir í fundargerð.

Erindið var einnig lagt fram á fundi hreppsnefndar Akrahrepps þann 4. mars sl. og var afgreislu þess frestað til næsta fundar.

Húnaþing vestra fjallaði um erindið á síðasta fundi sínum sem haldinn var mánudaginn 16. mars sl. Í fundargerð er sagt að góð reynsla hafi verið af farsælli sameiningu sjö hreppa í Vestur-Húnavatnssýslu árið 1998 og sameiningu Húnaþings vestra og Bæjarhrepps árið 2012. „Byggðarráð Húnaþings vestra telur eðlilegt að áður en  víðtækar og á margan hátt flóknar sameiningar sveitarfélaga í öllum landshlutanum komi til umræðu verði reynt á sameiningarvilja þeirra sveitarfélaga í  landshlutanum sem eigi að baki áratugalangt  og náið samstarf innan afmarkaðra svæða hans,“ segir í fundargerð byggðarráðs.

Því má ætla að ekki verði breytingar á fjölda þeirra sveitarfélaga sem að sameiningarviðræðum standa að svo komnu máli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir