Umferðartafir á Þverárfjallsvegi
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
29.08.2013
kl. 16.59
Búast má við töluverðum töfum á umferð um Þverárfjall á tímabilinu frá kl. 17:00 – 23:00 í dag vegna fjárrekstur um Norðurárdal, nánar tiltekið frá Þverá niður að Skrapatungurétt, en smölun þessi fylgir í kjölfarið á óveðursviðvörun Veðurstofu fyrir Norðurland nk. föstudag og laugardag.
Vegfarendum er vinsamlegast bent á að fara um Vatnsskarð í staðinn.
