Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2020. Veittir eru styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrkir til menningarstarfs og stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs. Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 20. nóvember klukkan 16:00.
Í verklags- og úthlutunarreglum sjóðsins segir m.a. að umsækjendur skuli vera lögráða einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög á Norðurlandi vestra. Styrkur Uppbyggingarsjóðs getur numið allt að 50% af áætluðum heildarkostnaði verkefnisins.
Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um styrkmöguleika auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.
Viðtalstímar verða sem hér segir:
Skrifstofa SSNV, Einbúastíg 2, Skagaströnd - þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 11-12.
Kvennaskólinn, Árbraut 31, Blönduósi - þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 13-16.
Skrifstofa SSNV, Höfðabraut 6, Hvammstanga - miðvikudaginn 6. nóvember klukkan 13-16.
Hótel Varmahlíð - föstudaginn 8. nóvember klukkan 10–12.
Vesturfarasetrið, Frændgarður, Hofsósi - föstudaginn 8. nóvember klukkan 10–12.
Skrifstofa SSNV, Faxatorgi, Sauðárkróki - föstudaginn 8. nóvember klukkan 13-17.
Sjá nánar hér.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.