Verkefnastyrkir NORA

Norræna Atlantssamstarfið (NORA) auglýsir á vef Byggðastofnunar verkefnastyrki fyrir árið 2020 en markmiðið með starfi NORA er að styrkja samstarf á Norður Atlantssvæðinu. Í því skyni eru m.a. veittir verkefnastyrkir tvisvar á ári til samstarfsverkefna á milli Íslands og a.m.k. eins annars NORA-lands, en starfssvæði NORA nær til Grænlands, Íslands, Færeyja og strandhéraða Noregs. Landfræðileg lega, sameiginleg einkenni, viðfangsefni, saga, stofnanir svo og menningarleg bönd tengja NORA-löndin. Umsóknarfrestur er til 2. mars 2020. 

Hámarksstyrkur er 500.000 dkr. sem lengst er unnt að veita til 3ja ára og aðeins sem hluta af heildarfjármögnun verkefnis, gegn mótframlagi viðkomandi aðila. Umsóknir skula fela í sér samstarf á milli a.m.k. tveggja NORA-landa. Í umsóknunum skal taka mið af samstarfsáætlun NORA 2017-2020. Þau svið sem helst eru styrkt eru eftirfarandi: 

• Skapandi greinar: Með „skapandi greinum“ er átt við starfsemi sem sprettur úr sköpunargleði, þekkingu og hæfileikum fólks og sem eflir velferð og eykur atvinnutækifæri með því að skapa og nýta þekkingarauð.
• Græn orka: Þróa skal og innleiða grænar orkulausnir til sjós og lands.
• Lífhagkerfi: Nýsköpunarverkefni skulu stuðla að verðmætaaukningu með þróun vannýtts hráefnis, nýrrar verðmætasköpunar og sjálfbærrar matvælaframleiðslu.
• Sjálfbær ferðaþjónusta: Ferðaþjónustan á að leggja sitt af mörkum til að auka fjölbreytni í viðkvæmum hagkerfum á svæðinu um leið og sjálfbærni innan greinarinnar eykst.
• Upplýsinga- og fjarskiptatækni: Upplýsinga- og fjarskiptatækni er mikilvægur liður í að sigrast á fjarlægðum.
• Velferðarþjónusta: Samstarf á svæðinu, sem miðar að því að takast á við þær áskoranir sem miklar vegalengdir og skortur á markfjölda fagfólks og sjúklinga/skjólstæðinga skapa, skiptir sköpum fyrir framtíð svæðisins.
• Öryggismál/viðbúnaður á hafi: Vaxandi skipaumferð á Norður-Atlantssvæðinu og Norðurheimskautssvæðinu fylgja nýjar og flóknar áskoranir.

 

Sjá nánar á vef Byggðastofnunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir