Vill styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni

Grunnur fyrsta íbúðarhússins á Blönduósi í rúmlega tíu ár var tekinn fyrir ári síðan. Mynd: huni.is
Grunnur fyrsta íbúðarhússins á Blönduósi í rúmlega tíu ár var tekinn fyrir ári síðan. Mynd: huni.is

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur birt tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum til að styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni og koma þar með til móts við áskoranir sem fjölmörg sveitarfélög standa frammi fyrir í húsnæðismálum.

Tillögurnar má sjá á samráðsgátt stjórnvalda og byggja þær meðal annars á tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs með sjö sveitarfélögum og er þeim ætlað að bregðast við þeim áskorunum sem sveitarfélög á landsbyggðinni standa frammi fyrir í húsnæðismálum.

Á landsbyggðinni ríkir víða stöðnun og á mörgum stöðum hefur ekkert íbúðarhúsnæði verið byggt í einn til tvo áratugi. Mun meira var byggt á landsbyggðinni frá aldamótum og fram að hruni, heldur en síðustu ár. Sérfræðingar Íbúðalánasjóðs sjá merki um markaðsbrest á mörgum svæðum enda ráðast fáir í að reisa nýtt íbúðarhúsnæði þrátt fyrir að atvinna sé víðast hvar næg og eftirspurn eftir íbúðum mikil. Þá er algengt að þeir fáu sem vilja byggja í smærri sveitarfélögum komi að lokuðum dyrum á lánamarkaðnum.

Ráðherra boðar einnig að hann muni setja í reglugerð nýjan lánaflokk hjá Íbúðalánasjóði til að auðvelda sjóðnum að veita fjármögnun á landsbyggðinni. Hann leggur áherslu á að tryggja þurfi íbúum landsbyggðarinnar aðgengi að fjármagni á sambærilegum kjörum og fást á virkari markaðssvæðum. Þá vill hann bregðast við skorti á hagkvæmu leiguhúsnæði með því að gera sveitarfélögum á landsbyggðinni kleift að byggja íbúðir í almenna leigukerfinu með stofnframlagi ríkisins. Tillögurnar taka mið af ólíkum áskorunum sveitarfélaga víðs vegar um land. 

„Niðurstöður tilraunaverkefnis Íbúðalánasjóðs á landsbyggðinni sýna að það ríkir markaðsbrestur á húsnæðismarkaði víða á landsbyggðinni. Enginn er að svara eftirspurninni þrátt fyrir að næg kaupgeta sé fyrir hendi hjá íbúum í þessum sveitarfélögum. Ég tel að það þurfi aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að rjúfa þá stöðnun sem ríkt hefur í húsbyggingum á landsbyggðinni. Ef við lítum til baka þá sést að hrunið hafði meiri eftirköst í för með sér fyrir húsnæðismarkaðinn úti á landi heldur en á suðvestur-horninu. Nýbyggingar hafa verið sjaldséðar utan stærstu atvinnusvæða en fólk sem býr utan þessara svæða þarf líka nýtt húsnæði. Það er uppgangur í nýjum atvinnugreinum á landsbyggðinni og oft er skortur á húsnæði helsta vandamál fólks sem ræður sig í þau störf,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra

Sjá nánar í samráðsgátt stjórnvalda

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir