Vinna við nýja sóknaráætlun formlega hafin
Fyrsti formlegi fundurinn í tengslum við gerð nýrrar sóknaráætlunar og sviðsmynda atvinnulífs Norðurlands vestra var haldinn nýlega. Á vef SSNV segir að verkefnisstjórn vinnunnar hafi fundað fyrri hluta dags en hana skipa stjórn SSNV, fulltrúar þeirra sveitarfélaga sem ekki eiga mann í stjórn sem og starfsmenn samtakanna. Síðari hluta dags bættust aðilar úr atvinnulífinu við. Á fundnum var farið yfir fyrstu niðurstöður netkönnunar sem gerð var í tengslum við vinnuna en þær verða kynntar nánar með haustinu.
Á vef SSNV segir að niðurstöður netkönnunarinnar gefi til kynna bjartsýni íbúa í landshlutanum sem gefi góðan tón inn í þá vinnu sem framundan er við gerð nýrrar sóknaráætlunar.
Einnig settu fundarmenn sig inn í framtíðina og skoðuðu hvernig atvinnulíf í landshlutanum gæti mögulega litið út á árinu 2040. Var vinnan leidd af ráðgjöfum KPMG en samið var við þá um að vinna að gerð sóknaráætllunar áranna 2020-2024 með samtökunum.
Ráðgjafar KPMG munu svo á næstu vikum, vinna úr niðurstöðum vinnu fundanna. Með haustinu verður boðað til fleiri funda sem opnir verða öllum sem áhuga hafa á að taka þátt í vinnunni. Verður bæði fundað með smærri hópum en endað á stórum samráðsfundi sem opinn er öllum íbúum landshlutans. Rík áhersla verður lögð á samráð með ýmsum hætti t.d. með rafrænum samráðsvettvangi þar sem íbúar geta skráð sig og munu í framhaldi af því fá tækifæri til að hafa áhrif á vinnuna við gerð áætlunarinnar og sviðsmyndanna en einnig á framkvæmdina á samingstíma nýrrar sóknaráætlunar með stuttum könnunum, beiðnum um hugmyndir að áhugaverðum verkefnum o.fl. Einnig verður sóknaráætlunin sjálf birt til samráðs á heimasíðu samtakanna áður en hún verður lögð fyrir haustþing til samþykktar.
Rafræni samráðsvettvangurinn hefur nú verið opnaður og eru áhugasamir íbúar á Norðurlandi vestra hvattir til að skrá sig og taka þannig þátt í að móta framtíð Norðurlands vestra. Skráning fer fram hér: http://eepurl.com/gvFMxT
Dagsetningar funda með haustinu verða rækilega auglýstar þegar nær dregur og fá aðilar á rafræna samráðsvettvangnum tilkynningar um alla fundi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.